Monday, April 12, 2004

hæ hæ
mikið að gerast núna :)
Mamma í heimsókn í reykjavíkinni og við systurnar erum að draga hana út um allt. :)
einig er maður svo á kafi í lærdóm. ég er að vinna í ritgerð í heimspeki um trúverðugleika/ótrúverðugleika guðs.
og í leit minni að efni til að vinna með spurði ég frænda kærasta míns um aðstoð og eitt af því sem hann benti mér á var þessi síða sem ég las með opin munn og lafandi túngu því ég var svo hissa ....
http://www.kss.is/Replies.asp?id=905
ég var svo hissa á þessu að ég var lengi að jafna mig þegar ég var búin að lesa þetta..
sumt af því sem þeir eru að segja þarna er bara fávitalegt....

en nú ætla ég að fara að letast með kærastanum mínum :)
og svo kannski fara í frispígolf á eftir .... :)
hafði það gott í dag :)

Wednesday, January 28, 2004

Gæsalappir á trippi við tjörninna.

Það var síðla eitt sumarkvöld við tjörninn ráðhússins að ég sá þessar stöllur fyrst. Sitjandi á bekk og horfðu á fuglanna á tjörninni, reyktu sígarettur og flissuðu. Ég hélt fyrst að þær væru bara tvær eldri konur á ferð og hefðu sest þarna niður til að hvíla sig en þeim mun oftar sem ég fór að venja ferðir mínar hérna niður að tjörninni til að taka myndir af fuglunum og tjörnninni sá ég þær oftar og oftar sitja þarna saman. Og seinna meir fékk ég að vita af vini þeirra að þær væru heimilislausar greyin. En það sást ekki á þeim samt sem áður. Þegar ég sá þær koma örkuðu þær eins og þær væru partur af langri röð eða risastórri herfylkingu. Sú stærri á undan og dró hún lappirnar eins og hún væri í steypustigvélum en ekki illaförnum gömlum léttum strigaskóm. Hin minni fylgdi svo á eftir og starði niður í götuna í stað þess að horfa beint áfram eins og flestir gera, sem gerði það að sjálfsögðu að verkum að þegar sú á undan stoppaði gekk hún á hana með tilfallandi látum og flissi. Þær voru greinilega miklar vinkonur því hvergi annarstaðar sá ég þær og aldrei sá ég þær öðruvísi en saman flissandi og talandi hvor í kapp við hina. En þó voru þær ekki alltaf glaðar gat ég séð stundum grétu þær báðar. Stundum hlógu þær báðar en oftast sat sú minni og grétt eins og henni væri mikið niður fyrir en sú stærri brosti stóru brosi, dansaði í kringum hana og reyndi að hressa hana með gömlum sögum og bröndurum. Mig langaði mikið að kynnast þeim svo að eitt kveldið ákvað ég að setjast á bekkinn þeirra með myndavélina mína og sjá hvort þær vildu setjast hjá mér og tala við mig. Og viti menn þær hikuðu ekki einu sinni. Þær settust sin hvoru megin við mig og heilsuðu mér fallega. Og byrjuðu strax að tala um allt og ekkert. Og þá komst ég að því að í fæstum tilvikum var eitthvað til í því sem þær voru að segja. Heldur hrundu bara orðinn og vitleysan út úr þeim eins og vatn í læk og svo flissuðu þær af ruglinu í sér.
“Fatan snýr öfugt„ sagði önnur þeirra.
“Tindurinn er bleikur og sólinn græn„ sagði hin og svo flissuðu þær.
Sú stærri dró upp illa farinn Camel sígarettupakka og dró upp tvær sígarettur og rétti vinkonu sinni aðra þeirra og tók svo upp þá þriðju og brosti til mín.
“Apinn sagði að vekjaraklukkan hefði bilað þegar hann átti að borða bananann„
Ég gat ekki annað en hlegið með þeim þegar sú litla veltist um af hlátri yfir þessari furðulegu athugasemd vinkonu sinnar. Og ég hugsaði með mér að það væri ekki svo slæmt að reykja svona eins og eina sígarettu þeim til samlætis og tók því við sígarettunni sem hún rétti mér. Ég virti hana fyrir mér. Þetta voru greinilega ekki keyptar sígarettur heldur heimavafðar. Það gat ég séð þó ég hefði ekki mikið vit á þessum bransa. Aldrei haldið á sígarettu eða dottið í hug að reykja. En af hverju ekki að prófa í svona fínum félagskap.
“þetta hlýjar þér á tánum og skerpir heyrnina” heyrði ég aðra þeirra hvísla í annað eyrað á mér og í kjölfarið fylgdi að sjálfsögðu flissið sem svo hafði í för með sér nokkra desilítra af munvatni sem fyllti á mér eyrað og rann svo niður eftir hálsinum og inn undir hálsmálið. Ég hryllti mig og þurkaði úr eyranu á mér það sem ég náði til. En þær héldu bara áfram að hægja svo þær ultu útaf bekknum. Sú minni róaðist nú aðeins og dró uppúr öðrum úlpuvasanum kveikjararæfil og bar hann upp að sígarettunni sinni sem henni tókst að kveikja í milli þess sem hún helti út úr sér óskiljanlegum setningum og hlátri. Rétti mér svo kveikjarann og ég kveikti í minni. Já ég kunni nú víst að kveikja í. Það hefur maður nú víst heyrt um hvernig eigi að gera eða séð aðra gera það. Ég rétti svo hinni dömunni kveikjaran þegar henni var búið að takast að setjast aftur á bekkinn við hlið mér.
“arnarhóll er afabæli” sagði sú stóra.
“jamm stóll og hæli” sagði hin og sló mig svo fast í öxlina að smókurinn sem ég var að anda að mér hrökk ofan í mig og stóð í mér. En þær flissuðu bara og hlóu.
Þegar ég loks náði andanum aftur horfðu þær á mig þessum vonar augum og brostu eins og tvær litlar óþekkar skólastelpur sem eru að reyna að vera saklausar á svip. Ég horfði á þær til skiptis og vissi ekki alveg hvað ég ætti að mér að gera. Þær litu hvor á aðra og svo á mig aftur.
“hvernig líður, bíður, síður” sagði sú minni.
“heita, bleita, reita„ “feika, leika„ sagði sú stærri og sú litla byrjaði aftur að flissa og viti menn þó mér þætti þetta ekkert sérlega hlægilegt, byrjaði ég líka að flissa, ég leit á þær og þær brostu breitt. Eins og þær væru að bíða eftir eitthverju. Og viti menn þegar ég var byrjaður að flissa þá var eins og ég gæti ekki hætt.
“jæja broddgölturinn er búin að stinga hann í rassinn„ sagði sú minni
“og djöfullinn er búin að blessa hann„ sagið sú stærri og þær hlóu með mér.
Og flissaði yfir þessi rugli og flissaði þar til ég hló svo mikið að mér var orðið íllt í magavöðvunum og þær hlógu með mér og héldu áfram að segja einhverja vitleysu sem enginn skildi neitt í. Ég hallaði mér fram og hélt um magann og hló eins og brjálaður. Þar til ég valt útaf bekknum og lagðist í stéttina og tárin runnu úr augunum á mér og ég hafði ekki vald á mér lengur. “hættið„ “hættið„ skældi ég milli hláturrokanna “þetta er sárt„ flissaði ég og hélt um magann á mér til að reina að koma í veg fyrir að vöðvarnir slitnuðu. Og fljótlega lægði svo hlátrinum og ég gat sest aftur upp á bekkinn. Ég horfði á dömurnar tvær til skiptis og vissi ekkert hvað ég átti að segja eða gera.
En að sjálfsögðu redduðu þær bara málunum.
“Pétur ætlar að koma koma koma„ sagði sú litla og stóð á fætur og snéri sér í hringi.
“já já já já já já já já já„ söng sú stærri og stóð upp og reif mig á fætur og fór að snúa mér í hringi af miklum krafti. Ég fann að ég var að fara að fá annað hláturskast svo ég sleit mig frá henni og settist aftur á bekkinn og reyndi að halda aftur af hlátrinum á meðan ég horfði á þær dansa fram og aftur og í hringi fyrir framan mig. Mér tókst að halda aftur af mesta hlátrinum og hallaði mér aðeins aftur til þess að jafna mig. Þá kom og settist hjá mér eldri maður ávarpaði mig.
“ert þú lika komin á götuna?„
“eh.. um.... eh.. nei„ tókst mér að hiksta upp.
“nú nú... þekkiru þær?„
“uh.. nei eigilega ekki. Kem bara hérna stundum til þess að taka myndir af fuglunum og tjörninni og ég bara hitti þær hérna í kvöld„ ég þorði ekki að segja honum að ég væri búin að vera að fylgjast með þeim síðasta hálfa mánuðinn.
“nú jæja„ sagði hann bara rólegum rómi og leit til damana tveggja sem voru komnar niður að tjarnarbakkanum og voru að reina að klappa gæsunum og öndunu. Maðurinn brosti. “þetta eru gæsalappirnar mínar„ sagði hann og brosti. “ég er bara orðinn gamall kall og hef ekkert að gera nema eiða eftirlaunapeningunum minum„ hann hló stutt og leit svo á mig aftur. “sérðu það ekki„ sagði hann “ þær eru eins og gæsalappir í bók. Önnur er hátt uppi og dregur fætur, en hin er langt niðri og hengir hausinn„ hann brosti og horfði á þær örstutt en leit svo niður á jörðina beygði sig niður og tók upp sígarettustubbinn sem ég hafði misst í hláturskastinu. “ekki hafa þær skilið þetta eftir„ sagði hann. “þær nota þær sko vel þessar og líður vel„ sagði hann og brosti. Ég stóð upp og leit á hann. “jæja það er best að ég komi mér„ ég borsti og leit á gamla manninn “nei þessa átti ég víst að klára. Þær gáfu mér þessa. Ég hef aldrei vitað til þess að maður yrði svona hress af því að reykja„ sagði ég og snéri mér við til að líta á dömurnar sem nú voru að koma hlaupandi með að ég gat best heyrt nafn gamla mannsins á vörunum. “pétur„ “pétur„ “pétur„
Hann hló mjúkt og hressilega og stóð upp og klappaði mér á öxlina. “það fer nú eftir því hvað þú ert að reykja. Þetta eru eingar venjulegar sígarettur„
“Nú?„ hoppaði upp úr mér ég var svo hissa.
“já já þetta er gras„ sagði hann eins og ekkert vær sjálfsagðara.
“ég held þú ættir að drífa þig heim í bólið áður en þær bjóða þér aðra„ sagði hann glaðbeittur.
“já atli það ekki sagði ég snéri mér við og veifaði til kvennanna sem veifuðu villt á móti. Tók í höndina á Pétri og þakkaði fyrir mig.
“já já þú ert velkominn aftur þegar þig langar í meira„ sagði hann og hló svo hátt að það drundi í ráðhúsinnu.
Ég gekk heim á leið með hugan fullan af hugsunum um atburði kvöldsinns...
Gæsalappir hugsaði ég og flissaði...
Þvílíkt kvöld...

Saturday, November 08, 2003

lítil sktítla sem ég samdi um daginn :)

á þingi þreyttir þrasa þeir,
Afi, faðir, sonur.
strjúka sitt höfuðleður meir,
en sínar eigin konur.
hello hello hello
Laugardagur :)
Folf-tími ... :)
alltaf gaman að vakna í vinnunna á morgnanna og svona :p he he
og fara svo í fólf með kærastanum á eftir :)
það er fínasta veður úti núna og um að gera að drífa sig út í blíðunna :)

sjáumst :)

Wednesday, November 05, 2003

hæ hæ hæ öll sömul

Lang síðan ég var hérna síðast..
Og alveg hellingur hefur gerst.....
alveg ótrúlega skemmtilegir og spennandi hlutir :)

fyrir umþað við tveimur mánuðum kyntist ég ungum herramanni á tónleikum einum þegar hann réðist á mig og systur mína í andirinu.
tróð litlum miða í aðra lúkuna á okkur og hendi sinni í hina og hristi handleggin á mér svo ég var handlama lengi á eftir. :)
hvað um það daginn eftir kemst ég í samband við hann í gegnum MSN og upphefjast samtölinn á milli okkar á ýmsum mönnum málefnum en þó aðalega bara okkur sjálfum og hvað við erum skrítin og skemmtileg, en stundum döpur og leið og einmanna.
svo leiðir eitt af öðru og við ákveðum að skella okkur í bíó...pirates of the carribien mundi það hafa verið ef ég man rétt.
fyrsta myndin sem við fórum á saman..
Það var soldið skrítið, hálf vandræðalegt eða eitthvað þannig .. eða skrítið .. ég var allavega mjög feiminn og sagði nánast ekki neitt ef að ég man rétt. en það var rosa gaman og við fórum aftur og aftur :)
þar í millitíðinni kinnti hann fyrir mér frænda sínum, Sigurði Hólm Gunnarsyni sem er sennilega best þekktur fyrir heimildarmyndina um einelti sem hann gerði með félugum sínum. Saman Hjálpuðu Þorsteinn og Siguður Hólm mér í gegnum allt það sem hefur legið á öxlum mínum í mörg ár og er ég þess vegna í dag nánast ný manneskja. Þó en með nokkur óleist vanda mál en ef ekki hefði verið fyrir þá tvo væri ég alskekki hérna í dag.

Annað og mikið hefur gest einnig.
samband okkar Þorsteins hefur þróast og er nú komin á hátt stig umhyggju og ástar :p híhí
og erum við núna búin að vera í sambandi í hálfan mánuð og vona ég að það eigi eftir að verða langt of farsælt.. þ.e.a.s. ef ég stend mig.

vona að allir hafi það gott og muni hafa.....
sjáumst .. :)

Saturday, September 20, 2003

hellu ....
ég var að vona að þetta myndi ekki virka núna. . . .
er eigilega ekki í skapi til þess að skrifa eitthvað núna . . .
en atli ég reini ekki að skrifa eitthvað fyrst ég er hérna . . .
ég var að lesa á greinar og hugleiðingar og sögur á skodun.is í dag
og það snerti mig mjög. átti mjög erfitt með að husa skírt.. allt fór í hringi og ég fór fram og til baka í tímanum.. og allir þessir hlutir sem ég er búin að vera að grafa réðust á mig svo að ég gat eingan veginn varið mig. . . I´t was hell !!

segi ekki meira ........ :(

Saturday, September 13, 2003

hello hello hello

Loksins virkar þetta drasl eins og það á að vera .....
ég hef átt í vandræðum með tölvuna mína þannig að ég hef ekkert getað póstað hérna ...
skólinn er komin á stað og verkefnin komin á stað og allt orðið ofsa gaman. :)
búin að fara á fullt af tónleikum og allt að veraða vitlaust ..
blóðið verður extra þykkt í þetta skiftir með alskonar skemmtilegur dóti ..
og með þessu blaði mun filgja mjög takmarkað upplag af safndiski...

allir að ráðast á mig og ég á aðra þannig að heilinn á mér vinnur ekki í gegnum all og allt að verða vitlaust ... :D
En það er bara gaman og ég vona að þetta fólk haldi því bara áfram því það er ofsaskemtilegt :)

THANKS TO YOU GUYS
þið vitið hver þið eruð :D

Og vonandi nælið þið ykkur í blóðfjöðrið næst :D

Friday, September 05, 2003

hi hi ....
veik ... :(
darn ....

hope to go to conserts tomorrow....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?